
Þökkum öllum þeim frábæru Spretturum sem komu að hreinsunardegi Umhverfisnefndarinnar sem fram fór þriðjudaginn 21. apríl sl. Sýnum að við erum öflugt félag og stöndum saman í fjölbreyttum verkefnum. Vonandi verða allir Sprettarar áfram meðvitaðir um að taka saman í kringum sig og ganga vel um fallega svæðið okkar.